-
Freyja - Páskar 2009Leitin að Gulllyklinum, þar sem leit Skotta, Huppu og Freyju að umtöluðum lykli blandaðist saman við leit hins almenna páskaeggjaneytanda að Gulllyklinum inni í páskaegginu sínu, og þar með tækifæri til að vinna stórglæsilega vinninga. -
Freyja - Idol tilboðÞetta verkefni er ákaflega skýrt dæmi um hvernig auglýsingar geta skilað árangri án þess að menn fari fram úr sér með einverju offorsi. -
Já.isJá og Kapital leiddu saman hesta sína og riðu síðan af stað. Áfangastaðurinn, fyrir utan sólarlagið að sjálfsögðu, var kynningarmyndbönd fyrir nýjan og betri já.is -
Jólakveðja Kapital 2008Við hjá Kapital vildum senda öllum einstaklega hljómfagra og gagnvirka jólakveðju í ár. -
Frostrósir 2008Frostrósir er fyrir löngu orðin þekkt stærð í aðdraganda jólanna. Síðan árið 2002 hafa verið haldnir jólatónleikar ár hvert við góðar undirtektir. -
Undir 5000Skyndilega fékk Kapital hugmynd að því hvernig hægt væri að gera jólahátíðina og allt sem henni fylgir aðeins auðveldara í meðförum, um leið og allir fengju eitthvað fyrir sinn snúð og enginn færi í jólaköttinn. -
Toblerone.isSúkkulaðið Toblerone þekkja allir Íslendingar, ungir sem gamlir. Því, að í ár er Toblerone súkkulaðið 100 ára. -
MentisKapital fékk það umfangs- og viðamikla verkefni í traustar og styrkar hendur sínar að endurhanna og endurskilgreina útlit og markaðsefni hugbúnaðarfyrirtækisins Mentis. -
Taktu þáttTaktu þátt er yfirskrift umfangsmikils forvarnarverkefnis á vegum Forseta Íslands. Þetta var samstarfsverkefni Kapital og Hvíta hússins og má segja að þarna hafi allir sem áttu í hlut náð að láta ljós sitt skína. -
Freyja 90 áraÍ níutíu (90) ár hefur sælgætisverksmiðjan Freyja glatt bragðlauka landsmanna. Þessu ber auðvitað að fagna. Þessu var nánar tiltekið fagnað með fjölbreyttu úrvali miðla, enda tilgangurinn að vekja athygli íslensku þjóðarinnar á þessum tímamótum. -
Atvinnuþróunarfélag ÞingeyingaAtvinnuþróunarfélag Þingeyinga hafði samband við Kapital um gerð prentaðs kynningarefnis fyrir ráðstefnur og aðra viðburði. -
TM Software skjáhvílaTM Software falaðist eftir samstarfi við Kapital um gerð skjáhvílu sem staðsett yrði í Keflavík, nánar tiltekið brottfarasal í Leifsstöð. -
Iðnó bæklingurÞað var með töluverðri ánægju sem Kapital tók að sér að vinna kynningarefni fyrir Iðnó, eitt elsta og sögufrægasta en um leið hressasta hús borgarinnar. -
Maarud sumarherferð 2008Maarud og Kapital hófu gæfuríkt samstarf sitt með því að koma Sumarleik Maarud á laggirnar. Kapital, hins vegar, hefur þann undarlega ávana að þrýsta stöðugt á landamæri, mörk og hefðbundnar hugmyndir. -
Skjárheimur & SkjárbíóSkjárinn vildi framleiða kynningarmyndbönd í tengslum við stóra uppfærslu á viðmóti Sjónvarps Símans sem hafði áhrif á það hvernig viðskiptavinir upplifðu notkun SkjáHeims og SkjáBíós. -
Sense - PanoramaÞegar Sense, „Gourmet“ verslunin á sviði lífsstíls og tækni, vildi vinna með Kapital að metnaðarfullri sjónvarpsherferð, var morgunljóst að menn og konur urðu að spýta í lófana. -
Verzló 2008Kapital sá um allt kynningarefni Verzlunarskólans fyrir árið tvöþúsundogátta (2008). -
Freyju BuffalóKapital gerði grafískar auglýsingar fyrir Freyju til að koma Buffaló súkkulaðinu á framfæri. Markmiðið var að undirstrika að Buffaló súkkulaðið fengist nú einnig stakt, eitt og sér. -
FreyjuheimurKæru ferðalangar, vinsamlegast athugið: Ævintýrið er formlega hafið. Nánar tiltekið Freyjuheimsævintýrið sem Kapital galdraði í samhangandi heild fram úr hattinum sínum. -
Háskólinn á AkureyriMarkmiðið með þessu nýja kynningarefni fyrir Háskólann á Akureyri var að undirstrika sérstöðu og styrkleika skólans. -
Hótel GlymurHótel Glymur er staðsett í Hvalfirðinum, og er ákaflega fallegur, friðsæll og afslappandi staður til að gista á. Starfsmenn Kapital gista reglulega á Hótel Glym til að flýja amstur hversdagsins, og geta, allir sem einn, mælt heilshugar með þessum einstaka stað. -
OpenHandOpenHand er, í mjög stuttu máli, ákaflega sniðug leið til að stunda gagnaflutning í gegnum farsíma. Hins vegar er nánari útlisting töluvert flókin og OpenHand leitaði til Kapital til þessa að endurhanna bæði framsetningu á kynningarefni sem og útlit þess. -
Mamma mamma - VefurVefsíða sem Kapital smíðaði til að koma hinni feikilega skemmtilegu og vinsælu leiksýningu Mamma mamma jafnvel enn meira á framfæri: Og til þess að skapa henni sess við hæfi á internetinu. -
Pósturinn - VefkarakterKapital sá um að koma lifandi karakter á nýjan vef Póstsins. Friðrik Friðriksson fer hamförum sem hjálparhella notandans. -
Óskalistinn minnKapital sá um að koma herferðinni „Óskalistinn minn“ á laggirnar fyrir Nýherja. Herferðin gekk út á markaðssetningu á netinu með því að bjóða notendum að setja saman sinn eigin óskalista úr vörum Nýherja og senda hann svo áfram á vini og vandamenn. -
FrostrosesFrostroses er fjölþætt og fjölþjóðlegt verkefni af epískri stærðargráðu sem snerist um að kynna og koma til skila tónleikahaldi og hljómplötuútgáfu Evrópsku Dívanna, samasafn nokkurra bestu söngkvenna Evrópu. -
Englar í ullarsokkumKapital fann barnið í sjálfu sér, og framleiddi þessa naívísku auglýsingu fyrir nýja barnadiskinn frá Hafdísi Huld. -
Eyelove - vefurKapital smíðaði vefinn beint fyrir ofan þennan texta fyrir fyrirtækið Eyelove, sem sérhæfir sig í sjónrænum skreytingum fyrir hin ýmsu tækifæri. Eðli málsins samkvæmt lagði Kapital áherslu á að vefurinn væri sjónræn prýði. -
Hreysti / KrafturFlestir ættu að geta verið sammála um að myndarlegir og vöðvastæltir karlmenn í hita leiksins eru sjónræn prýði. Merkilegt nokk er þetta eitthvað sem Arnar Grant, Ívar Guðmundsson og Rocky eiga allir sameiginlegt. -
LjósvakaljóðVefsíða sem Kapital smíðaði fyrir stuttmyndahátíðina Ljósvakaljóð. Býður m.a. upp á vídeóspilun og stuttmyndaáhorf. -
Osta og smjörsalanKapital framleiddi nokkrar sjónvarpsauglýsingar fyrir Osta- og smjörsöluna. -
GagnaveitanFramtíðin nálgast þig nú hraðar en nokkru sinni fyrr. Og þú getur hraðað jafnvel enn frekar á þessu ferli með því að skoða þetta kynningarmyndband sem Kapital gerði fyrir háþróað Ljósleiðaranet Gagnaveitunnar. -
SenseKapital hefur mikinn áhuga á öllu sem hefur skilgreininguna „Gourmet,“ og tók því ákaflega vel í að gera háklassa kynningarefni fyrir verslunina Sense, sem án efa flokkast sem „Gourmet“ hátækniverslun sem býður upp á spennandi lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. -
Reykjavik Casting - VefurVefsíða sem Kapital hannaði og smíðaði fyrir Reykjavík Casting. Vefurinn býður upp á fjölbreytt úrval af efni og myndarlegu fólki. -
Freyja - Eurovision - Páll ÓskarÞegar Freyja bað Kapital um að gera Júróvisjón auglýsingar fyrir sig kom sú hugmynd mjög fljótt upp á yfirborðið að nota holdgerving keppninnar, sjálfan Pál Óskar, til að lyfta konsefftinu í hæstu hæðir. -
Spron - VerðbréfKapital framleiddi þessa ákaflega vel samhæfðu auglýsingu fyrir SPRON verðbréf. Þess má einmitt geta að Kapitalstarfsmenn nota þessar regnhlífar enn á rigningardögum. -
Verzló kynningarefni 2005 - 2007Kapital hefur í gegnum árin unnið hið margvíslegasta kynningarefni fyrir Verzlunarskóla Íslands. -
TáknmálKapital er í samstarfi við Táknmál ehf. um að koma upp táknmálsviðmóti sem víðast á internetinu, þannig að heyrnarskert/laust fólk fái aðgang að sjálfsögðum og oft á tíðum nauðsynlegum upplýsingum. -
Kapital„Sjálfs er höndin hollust,“ segir máltækið. Og þegar fyrirtæki eins og Kapital á í hlut, fyrirtæki sem er mikið í mun að sýna hvers það er megnugt, tekur sig til og framleiðir kynningarefni fyrir sjálft sig gefur augaleið að mikið liggur við. -
Síminn - FrelsiEf þú ætlar að ná til ákveðins markhóps, verðurðu að tala tungumálið hans. Tökum unglinga sem dæmi. Í þessu tilfelli átti að ná til unglinga, og þess vegna var talað unglingamál og vísað smekklega í unglingamenninguna. Kapital saknar Dylan. -
JúmbóÚtvarpsauglýsingum ber ávallt að taka sig hæfilega alvarlega. Afbragðs dæmi um nákvæmlega þetta má finna í þessum útvarpsauglýsingum hér, þar sem Sandwich lávarður ríður röftum á eftirminnilegan hátt. -
N1Hér gefur að líta kynningarefni sem Kapital framleiddi fyrir N1. Þetta myndefni endurspeglar fjölþætta starfsemi N1 samsteypunnar, og leitast við að gefa skýrari mynd af henni. -
Freyja - MótorkrossMótorhjól eru töff. Stelpur á mótorhjólum eru fáránlega töff. Fleygjum eyðimerkursöndum, strandlengjum og flugvélaflökum inn í þetta, og þá erum við komin með hina prýðilegustu mixtúru. -
Vísir - Allt sem þig vantarAð koma hugtakinu „Allt“ til skila í stuttri sjónvarpsauglýsingu er meira en að segja það. Allt annar handleggur. Enda þurfti ákaflega metnaðarfulla blöndu af grafík og lifandi vídeóefni til að koma verkinu í hús. Það var öllu til tjaldað hérna. -
Staur - Ragnhildur SteinunnOfurkonan Ragnhildur Steinunn sýnir að það þarf meira en slæmar byltur, harkalegar ákeyrslur og margbrotna árekstra við staura til að koma í veg fyrir að hún njóti þess að fá sér gómsætan Staur. -
Slysavarnarfélagið LandsbjörgSlysavarnarfélagið Landsbjörg og Kapital tóku höndum saman um að koma starfsemi félagsins, árvekni og síðast en ekki síst flugeldum rækilega á framfæri til landans. -
Fold - Afmæli / RómantíkAuglýsingar sem Kapital framleiddi fyrir Fasteignasöluna Fold. Auglýsingarnar varpa að sjálfsögðu gylltum og kósý ljóma á hugmyndina um að finna sér nýtt heimili, og möguleikana sem það býður upp á. -
Freyja - Draumur - JónsiÖgrandi auglýsing sem sýnir okkur inn í draumaheim Jónsa. Hvern dreymir svo sem ekki um klæðalitla konu á stærð við Hallgrímskirkju? -
Freyja - DjúpurHressandi auglýsingar fyrir Freyjunammi með Pétri Jóhanni og félögum. -
Freyja - Rís - BirgittaHressandi auglýsing fyrir Rís þar sem að Birgitta Haukdal sannar í eitt skipti fyrir öll að hún er ekki bara sæt heldur líka ákaflega áhugasöm um hvers kyns útivist. Enda trúir hvert mannsbarn henni þegar hún tilkynnir okkur að „við eigum það alltaf skilið.“ -
Freyja - VillikötturJón Gnarr í latexkattarbúningi? Getur ekki klikkað.
04.03.2010
Ævintýrið heldur áfram.
Undanfarin ár höfum við fylgst andaktug með ævintýrum Skotta, Huppu og Freyju í hinum æsispennandi Freyjuheimi, undarlegum hliðarheimi þar sem sælgætið á upptök sín og talandi dýr vaða uppi. Hver man t.d. ekki eftir þessari hérna: Og nú er nýtt páskaævintýri frá Freyju að fara af stað af fullum krafti. Páskarnir eru jú að nálgast óðfluga. Skotta, [...]
Lesa meira
04.02.2010
íslenskur Styrkur, Kraftur, og Hreysti.
Okkur hjá Kapital þykir alltaf fallegt þegar markaðsefni yfirstígur eðlislæg takmörk sín og umbreytist, verður að einhverju meira, verður að sögu (eða jafnvel framhaldssögu), og myndar eins konar afheim, lítinn sjálfstæðan hliðarveruleika. Við getum líka sleppt öllu bókmenntafræðilegu fensípents og sagt sem svo: Muniði eftir þessum? Flestir ættu að geta verið sammála um að myndarlegir og vöðvastæltir [...]
Lesa meira
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 414 3600 — kapital@kapital.is





