Freyja 90 ára
Í níutíu (90) ár hefur sælgætisverksmiðjan Freyja glatt bragðlauka landsmanna. Þessu ber auðvitað að fagna. Þessu var nánar tiltekið fagnað með fjölbreyttu úrvali miðla, enda tilgangurinn að vekja athygli íslensku þjóðarinnar á þessum tímamótum.
 
Skreytingar í búðum
Skreytingum í búðum var ætlað tvenns (2) konar hlutverk: Að vekja athygli á stórafmæli Freyju og, jafnframt, að benda á þann einstaka möguleika að fá sér Freyju Hrís á níutíu (90) krónur.
Stelpur í kattarbúningum
Kapital er mikill aðdáandi kvenmanna í kattarbúningum. Þar sem að glæsilegt lógó Freyju er jú einmitt tíguleg kisa var almenn sátt um að þetta væri kjörið tækifæri til að sameina þessa tvo mjög svo jákvæðu hluti. Téðar kattklæddu stelpur dreifðu fríu nammi, blöðrum, og "flyerum" sem rímuðu við skreytingarnar/grafíkina í búðum og lögðu áherslu á sömu skilaboð.
 
Sjónvarpsauglýsingar
Í aðeins minna en níutíu (90) ár hefur sælgætisverksmiðjan Freyja glatt augu landsmanna með stórskemmtilegum og einstaklega fjörugum sjónvarpsauglýsingum. Í tilefni af níutíu (90) ára afmæli Freyju setti Kapital saman brot af því besta, þetta seiðandi samklipp, sem lýkur svo með því að fræða viðskiptavini um að í tilefni af þessari afmælishátíð geti þeir fengið hundraðogtuttugu (120) grömm af Freyju Hrís á aðeins níutíu (90) krónur.
 
 
Útvarpsauglýsing
Hress útvarpsauglýsing sem gerði fólki grein fyrir þeim tímamótum sem afmæli Freyju óneitanlega var, ásamt því að benda á einstakt tilboðið á Freyju Hrís.
 
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 772 2000 — kapital@kapital.is
Kapital á Facebook Kapital á Flickr Kapital á Myspace Kapital á Myspace