Freyju Buffaló
Kapital gerði grafískar auglýsingar fyrir Freyju til að koma Buffaló súkkulaðinu á framfæri. Markmiðið var að undirstrika að Buffaló súkkulaðið fengist nú einnig stakt, eitt og sér. Slagorð herferðarinnar „Freyju Buffaló: Villtur og frjáls“ undirstrikaði þetta, auk þess að vísa í að Buffalóinn hefði nú yfirgefið hjörðina og ráfaði um sjálfstæður, sjálfs síns herra.
Umsögn viðskiptavinar
Freyja ákvað að endurvekja súkkulaðistykkið Buffaló, með nýjum umbúðum og í framhaldinu leituðum við til Kapital með að búa til nýjar sjónvarps auglýsingar. Starfsmenn Kapital brugðust hratt við og kynntu okkur fyrir sínum hugmyndum, sem féllu vel í kramið hjá okkur. Eftir að auglýsingarnar fóru í loftið hefur salan á þessu bragðgóða stykki aukist um ca 150%.
Kristín Elfa Axelsdóttir Sölustjóri Sælgætisgerðin Freyja