Freyja - Páskar 2009
Til að fylgja eftir og byggja á Páskaherferð Freyju 2008 (sjá hér) ákvað Kapital að taka málin í sínar hendur og fara skrefinu lengra. Ramminn utan um þetta umfangsmikla verkefni var ævintýrið Leitin að Gulllyklinum, þar sem leit Skotta, Huppu og Freyju að umtöluðum lykli blandaðist saman við leit hins almenna páskaeggjaneytanda að Gulllyklinum inni í páskaegginu sínu, og þar með tækifæri til að vinna stórglæsilega vinninga. Humm...þetta er eiginlega aðeins of mikið til að hægt sé að draga það saman í svona stuttum inngangstexta: Kynnið ykkur bara málið hérna fyrir neðan.
 
Vefur – Páskaleikur
Kapital gaf vef Freyju ákaflega páskalega yfirhalningu, en yfirhalningin atarna hélst jafnframt þétt í hendur við heildarútlit herferðarinnar. Hérna var líka komið fyrir sérstöku viðmóti þar sem fólk gat slegið inn dulmálslykilinn á Gulllyklunum úr páskaeggjunum sínum og athugað hvort að það hefði dottið í lukkupottinn.
 
Sjónvarpsauglýsingar
Hádramatískar og æsispennandi auglýsingar sem sýndu okkur Skotta, Huppu og Freyja í hremmingum um leið og þær kynntu Leitina að Gulllyklinum og þá glæsilegu vinninga sem voru í boði.
 


Umbúðir
Kapital hannaði nýjar umbúðir fyrir páskaeggin frá Freyju til að sameina þemu og samræma vörulínuna.

Blöð
Kapital hannaði hinar ýmsu auglýsingar fyrir þessa herferð, en allar áttu þær sameiginlegt að fylgja heildarútliti herferðarinnar og leita í sarp Freyjuheimsins. Þannig kynntu þær allar páskaeggin frá Freyju og Leitina að Gulllyklinum á samhangandi hátt.


 

Vefborði
Gagnvirkur og einstaklega hressandi vefborði sem gefur notendum kost á að sprengja páskaegg og leita að Gulllyklinum.
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 772 2000 — kapital@kapital.is
Kapital á Facebook Kapital á Flickr Kapital á Myspace Kapital á Myspace