Iðnó
Það var með töluverðri ánægju sem Kapital tók að sér að vinna kynningarefni fyrir Iðnó, eitt elsta og sögufrægasta en um leið hressasta hús borgarinnar. Markmiðið var að vekja athygli á Iðnó og endurskilgreina það um leið sem veitingahús sérhæft í hópa- og veisluþjónustu.
 
Bæklingur
Hugmyndin að baki Iðnó-konsefftinu er að Iðnó sé staður þar sem gamli og nýji tíminn mætast til að fá sér í gogginn. Það var einmitt þess vegna sem að Kapital hannaði bæklinginn eins og raun ber vitni: Hann samanstendur af fáguðu „retro“ útliti, og ljósmyndirnar eru af fólki í gömlum, gamaldags fötum, en hins vegar eru myndirnar ákaflega nýmóðins í gæðum og vinnslu. Kapital fékk enda Baldur Kristjánsson, unga og upprennandi ljósmyndarann með meiru, til að mynda herlegheitin.
 
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 772 2000 — kapital@kapital.is
Kapital á Facebook Kapital á Flickr Kapital á Myspace Kapital á Myspace