Sense
Kapital hefur mikinn áhuga á öllu sem hefur skilgreininguna „gourmet,“ og tók því ákaflega vel í að gera háklassa kynningarefni fyrir verslunina Sense, sem án efa flokkast sem „Gourmet“ hátækniverslun sem býður upp á spennandi lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Kapital lagði þar af leiðandi mikinn metnað (að vanda) í að koma þessum eigindum Sense til skila á áhrifaríkan hátt með smekklegum og síðast en ekki síst áhorfsvænum margmiðlunarsamsetningum.
Umsögn viðskiptavinar
Farin var skemmtileg leið við að kynna hugtakið á bak við Sense og þær vörur og þjónustu sem fyrirtækið býður upp á. Í kynningarmyndbandinu var sýnd fjarstýring sem gerði notanda kleift að upplifa þá möguleika sem Sense hefur yfir að ráða. Einnig voru settar fram almennar upplýsingar um lausnir Sense, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við teljum að vefsíðan gefi fólki góða hugmynd um þjónustu og lausnarúrval Sense fyrir heimili og fyrirtæki.
Andri Már Kristinsson, verkefnastjóri markaðsdeildar Nýherja
Sense.isKapital ákvað að hanna eilítið óvenjulegan vef fyrir Sense, vef sem legði áherslu á að sýna tæknina, virknina og þjónustuna sem Sense býður upp á.
VefborðiKapital framleiddi þennan vefborða fyrir Sense. Borðinn líkir eftir tækninni og möguleikunum sem Sense býður upp á.
VefborðiVefborði sem Kapital framleiddi fyrir Sense og gefur innsýn inn í stemninguna sem Sense leggur upp með að veita viðskiptavinum sínum.
Sense kynningarmyndbandKapital framleiddi 2 mínútna langt grafískt kynningarmyndband fyrir Sense. Myndbandið var hugsað sem útdráttur á konsefftinu á bakvið Sense, einföld og aðgengileg útlisting á því hvað Sense er og hvað Sense getur gert.