OpenHand
OpenHand er, í mjög stuttu máli, ákaflega sniðug leið til að stunda gagnaflutning í gegnum farsíma. Hins vegar er nánari útlisting töluvert flókin og OpenHand leitaði til Kapital til þess að endurhanna bæði framsetningu á kynningarefni sem og útlit þess. Gera hlutina einfalda og aðgengilega. Starfsmenn Kapital létu ekki segja sér þetta tvisvar (2) og blönduðu saman abstrakt gagnaflutningi, fílum að kremjast, skoppandi kanínum, öryggisvörðum, læknum, bankamönnum, vörubílstjórum og síðast en ekki síst, farsímum í ákaflega einfaldan, aðgengilegan og eilítið öðruvísi grafískan kokkteil.
Umsögn viðskiptavinar
Kapital tóku að sér það vandasama verkefni að endurhanna ímynd OpenHand nú nýverið. Átti það við um vörumerki félagsins, vefsíðu, kynningarmyndband og útlit bréfsefnis og nafnspjalda. Verkið var vel unnið frá fyrsta degi, allar dagsetningar stóðust og vinnubrögð Kapitalista öll til fyrirmyndar. Mæli hiklaust með þessu ferska og hugmyndaríka fólki hvenær og hvar sem er.
Frosti Heimisson, framkvæmdastjóri OpenHand
 
 
Merki og einkennisorð OpenHand
Kapital endurhannaði merki OpenHand, og, í samræmi við endurskilgreininguna á útliti og eigindum, úthlutaði þeim jafnramt nýjum einkennisorðum.
Önnur merki OpenHand
Endurskilgreiningin á heildarútliti OpenHand náði að sjálfsögðu einnig til allra merkja, eða „ækona“ OpenHand.
 
Vefur OpenHand
Kapital endurhannaði vef OpenHand, og kom með nýja framsetningu og áherslur.
Hvað er OpenHand?
Þar sem að eðli starfsemi OpenHand, og möguleikarnir sem fyrirtækið býður upp á, er ekki eitthvað sem er auðvelt eða fljótlegt að útskýra, gerði Kapital tveggja (2) mínútna langt grafískt kynningarmyndband sem útskýrir þessa þætti á einfaldan og aðgengilegan hátt.
 
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 772 2000 — kapital@kapital.is
Kapital á Facebook Kapital á Flickr Kapital á Myspace Kapital á Myspace