Umsögn viðskiptavinar
Nokkuð fastmótaðar hugmyndir lágu til grundvallar og af innsæi, krafti og miklum skilningi á þörfum þeirra sem myndböndin voru ætluð mótaði starfsfólk Kapital nálgun sem er allt í senn smekkleg, einföld og skynsamleg. Samtarfið við Kapital var til fyrirmyndar og unnu þau strax traust okkar með faglegum ráðleggingum, verðmætu innleggi og sterkum fókus á mikilvægustu atriði framleiðslunnar. Verkefnastjórn og samskipti voru afbragðsgóð, og Skjárinn er afar stoltur af útkomunni sem þegar hefur kallað fram mjög jákvæð viðbrögð hjá mörgum. Framleiðsla verkefnisins hefur gert Kapital að fyrirmyndar þjónustuaðila í okkar huga og munum við hiklaust leita til þeirra aftur þegar Skjárinn þarf á hugmyndaauðgi, þekkingu og eldmóði þeirra að halda.
Daddi Guðbergsson, viðskiptaþróunarstjóri Skjásins