Taktu þátt
Taktu þátt er yfirskrift umfangsmikils forvarnarverkefnis sem haldið er árlega á vegum Forseta Íslands. Þema verkefnisins að þessu sinni var MSN spjallforritið, enda grundavallaðist verkefnið í kringum að ná til ungs fólks og vekja það til umhugsunar. Þetta þema var gegnumgangandi í gegnum allt kynningarstarf verkefnisins, og þá ekki síst vefborðana, sem líkja eftir málglaðri gervigreind og hafa vakið gríðarlega athygli. Þetta var samstarfsverkefni Kapital og Hvíta hússins og má segja að þarna hafi allir sem áttu í hlut náð að láta ljós sitt skína.
 
Taktuthatt.is
Kapital hannaði þennan vef fyrir verkefnið, þar sem hægt er að fræðast um forvarnarmál á fjölbreyttan hátt, og með því að notast við hina ýmsu miðla, eins og til að mynda vídeóefni, kynningarmyndband og gagnvirku gervigreindina E-lísu.
Sjónvarpsauglýsingar
Kapital framleiddi sjónavarpsauglýsingar fyrir Taktu þátt verkefnið. Auglýsingarnar eru í anda verkefnisins, og vekja athygli á einum af meginþáttum þess. Hér má sjá eina af þeim sem fjallar um samveru.
 
Útvarpsauglýsingar
Kapital framleiddi útvarpsauglýsingar sem allar voru í anda verkefnisins. Hér er ein af þeim sem fjallar um áfengi.
 
 
Vefborði
Þessi vefborði var skapaður út frá MSN-þema verkefnisins, og gefur notendum færi á að eiga athyglisvert MSN spjall við stelpu að nafni E-lísa. Það sem er sérstaklega athyglisvert í þessu samhengi er að E-lísa er ekki raunveruleg stelpa, heldur ákaflega hress gagnvirk gervigreind með mikinn metnað fyrir heilbrigðum lífsstíl. Þessi borði hefur vakið feykilega mikla athygli, enda ekki á hverjum degi sem maður rabbar vinalega við tölvu út í bæ.
 
Forvarnardagurinn 2007 - Samantekt
Kapital framleiddi þetta myndband úr niðurstöðum könnunar um Forvarnardaginn 2007. Blandað var saman lifandi vídeóefni og grafískum þáttum í þeim tilgangi að koma niðurstöðum, áherslum og markmiðum verkefnisins sem best til skila.
 
Forvarnardagurinn 2008
Myndband sem Kapital framleiddi fyrir Taktu þátt verkefnið. Myndbandið tekur á markmiðum og áherslum herferðarinnar, og nálgast málefnin á áhugaverðan hátt með því að fá unglingana sjálfa til að tjá sig um málin.
 
Kapital — Lágmúla 9 / 4.hæð — 108 Reykjavík — 772 2000 — kapital@kapital.is
Kapital á Facebook Kapital á Flickr Kapital á Myspace Kapital á Myspace